Vakin er athygli á breytingum á þorskígildastuðlum frá síðasta fiskveiðiári.
Við strandveiðar er leyfilegur afli sem koma má með að landi í hverri veiðiferð 650 þorskígildi.
Veiði menn eingöngu þorsk er hámarkið 774 kg af honum óslægðum. Sé eingöngu um ufsa að ræða í tiltekinni veiðiferð er hámarkið óslægt 1.228 kg.
Við útreikninga til þorskígilda skal margfalda óslægðan afla með eftirfarandi stuðlum:
Þorskur 0,84
Ufsi 0,53
Ýsa 0,75
Steinbítur 0,75
Karfi 0,71
Langa 0,44
Keila 0,33