Í ár eru strandveiðar stundaðar 4. árið í röð. Þátttaka í veiðunum nú slær öll met, alls hafa 745 bátar hafið veiðar.
Á fyrsta ári strandveiða voru 554 bátar sem tóku þátt í veiðunum, 2010 voru bátarnir 738. Í fyrra fækkaði hins vegar niður í 685 báta og var því fjölgunin nú kærkomin og sýnir svo ekki verður um villst gríðarlegan áhuga á að stunda strandveiðar.
Veiðarnar hafa gengið vel í ár, afli víðast hvar verið með ágætum og gæftir yfir meðallagi góðar.