Svæði C – veiðum lýkur í kvöld

Í dag, 9. ágúst lýkur strandveiðum á svæði C, frá Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps.  Aðeins átti eftir að veiða 27 tonn þegar veiðar hófust í dag og er því öruggt að eitthvað verður veitt fram yfir viðmiðun.
Alls stundaði 161 bátur veiðar á svæðinu á þessu ári.