Sl. föstudag undirrituðu LS og Framsýn stéttarfélag kjarasamning um kaup og kjör á smábátum. Samningurinn er samhljóða því sem LS samdi um við sjómannasamtökin, fyrir utan tvær greinar sem bættust við. Annars vegar um kaup fyrir einstaka róðra og hins vegar um ákvæði um að gerður sé skriflegur ráðningarsamningur við bátsverja.
Samningurinn tekur til sjómanna á félagssvæði Famsýnar – Húsavík til og með Raufarhöfn.
Sjá einnig umfjöllun á heimasíðu Framsýnar. og í Morgunblaðinu.