Kjarasamningar – styttist í atkvæðagreiðslu

Félagsmenn eru duglegir við að kynna sér kjarasamninga LS og sjómannasamtakanna.   Þeir hafa nú verið settir á áberandi stað hér á forsíðunni til að auðvelda mönnum að rýna í þá.
Á morgun verða settir inn útreikningar og ýmsar upplýsingar sem ættu að auðvelda félagsmönnum enn betur að kynna sér efni þeirra.
Eins og komið hefur fram verða greidd atkvæði um kjarasamningana á aðalfundum svæðisfélaga LS, sem haldnir verða á næstu þremur vikum.