Kjarasamningurinn í tölum

Við lestur kjarasamnings LS og sjómannasamtakanna hafa vaknað margar spurningar.  Mest hefur verið spurt um hvað samningurinn þýðir í tölum.  Samantektin sem hér fylgir sýnir útreikninga fyrir uppgjör þegar einn til fjórir eru í áhöfn á línubátum þar sem annars vegar er beitt eða stokkað upp í landi og hins vegar handfæra-, neta- og vélabátum.