Aðalfundir Króks, Eldingar og Stranda

Um næstu helgi halda þrjú svæðisfélög LS aðalfundi sína.
Strandveiðifélagið KRÓKUR – félag smábátaeigenda í Barðastrandarsýslu –  fundar í Þorpinu á Patreksfirði laugardaginn 22. september.  Fundurinn hefst kl. 17:00.
Formaður Króks er Tryggvi Ársælsson Tálknafirði
Elding – félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum – fundar í Félagsheimili Bolungarvíkur sunnudaginn 23. september.  Fundurinn hefst kl. 12:00.
Formaður Eldingar er Sigurður Kjartan Hálfdánsson Bolungarvík 
Smábátafélagið Strandir heldur aðalfund sunnudaginn 23. september í Malarkaffi á Drangsnesi.  Fundurinn hefst kl. 20:30. 
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson Drangsnesi.