Fjölmargar tillögur frá líflegum aðalfundi Eldingar

Sunnudaginn 23. september s.l. hélt Elding, félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum aðalfund í félagsheimilinu í Bolungarvík.IMG_6914.jpg

Sem á öðrum aðalfundum svæðisfélaga LS, undanfarna daga, var fjölmargt til umræðu og ekki ríkti lognmolla í fundarsal, frekar en venjulega. Mæting var þokkaleg, en í áranna rás hefur hún verið til fyrirmyndar. 
Kjarasamningar þeir sem verið er að kynna þessa dagana voru að vonum mikið ræddir og eftir að farið var rækilega í gegnum allar greinar hans var gengið til kosninga.

IMG_6917.jpg

Formaður Eldingar er Sigurður Kjartan Hálfdánsson frá Bolungarvík og Ketill Elíasson hefur setið í stjórn LS fyrir hönd Eldingar, undanfarin ár.
Tillögur sem fundurinn samþykkti má sjá hér: