Halldór kosinn varaformaður LS

Á fundi stjórnar LS sem haldinn var í kjölfar aðalfundar tilkynnti Pétur Sigurðsson formaður Kletts að hann gæfi ekki lengur kost á sér sem varaformaður LS.   
Pétur Sigurðsson.jpg
Pétur Sigurðsson

Nýr varaformaður Landssambands smábátaeigenda var kosinn með lófaklappi á fundinum:  Halldór Ármannsson formaður Reykjaness.
Halldór Ármannsson.jpg
Halldór Ármannsson
Samtímis sem Pétri er þakkað farsælt starf í þau fimm ár sem hann hefur gegnt starfinu er Halldóri óskað allra heilla sem nýr varaformaður LS.