Fiskistofa sambandslaus

Athygli er vakin á að samband hefur rofnað við Fiskistofu.  Ástæðan er uppfærsla á gagnagrunni.  Áætlað er að samband komist aftur á seinnipart sunnudags.
Meðal þeirra þjónustuþátta sem sambandsleysið tekur til eru:
  • Línuívilnunar – símasamband liggur niðri – þeir sem verða á veiðum um helgina verða að hafa samband í byrjun næstu viku við Gunnar Alexandersson, galex@fiskistofa.is
  • Afladagbókar – svör við innsendingu á rafrænni afladagbók berast ekki.
  • Rafrænna upplýsinga um millifærslu á aflamarki
  • Umsóknar um veiðileyfi gegnum Ugga