Hinn 31. október s.l. var haldinn í Nuuk á Grænlandi fundur KNAPK, Samtaka veiði- og fiskimanna á Grænlandi og Landssambands smábátaeigenda. Fundarefnið var hin erfiða staða sem uppi er varðandi sölumál grásleppuhrogna.
Að auki var fundað með nokkrum kaupendum/framleiðendum og fulltrúum frá Verkalýðsfélagi Grænlands.
Tönnes Bertelsen frá KNAPK lengst til vinstri ásamt þremur kaupendum/framleiðendum grásleppuhrogna í Nuuk
Flestir þessara aðila voru sammála um að eina leiðin til að koma í veg fyrir langt tímabil erfiðleika fyrir grásleppuveiðimenn, væri sameiginlegt átak helstu veiðiþjóðanna um að draga verulega úr sókninni á vertíðinni 2013.
Fyrirkomuleg veiðanna á Grænlandi er um margt ólíkt því sem gerist annars staðar. Þannig eru veiðarnar ekki háðar sérveiðileyfi, heldur fylgja hinu almenna leyfi til atvinnuveiða. Vertíðin hefur upphafs- og lokadag, en náttúrufarslegar aðstæður skipta vesturströnd Grænlands nokkuð sjálfkrafa niður í ein 7 veiðisvæði, þó þeirra sé ekki getið í lögum eða reglum. Enn eru umtalsverð veiðisvæði ókönnuð við vesturströndina, sem og að engin grásleppa er veidd við austurströndina, þó vitað sé að eitthvað er af henni þar.
Frá höfninni í Nuuk, beint fyrir neðan skrifstofur KNAPK. Mjög algengt er að grásleppuveiðarnar séu stundaðar á bátum eins og eru næst á myndinni. Ekki er óalgengt að ‘grynnri endinn’ á trossunum sé festur í landi. Það er því ekki langt að fara fyrir marga þeirra, til að vitja um.
Hér er hin sameiginlega yfirlýsing: