Dr. Björn Björnsson fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnuninni hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2012. Hugmyndin byggir á lágtíðnihljóðmerki til fiskveiða – hljóði til að safna fiski saman. Auk peningaverðlauna fékk Björn verðlaunagrip – Svifaldan – sem gefin er af TM.
