Félagsblað Landssambands smábátaeigenda – BRIMFAXI – er kominn út. Blaðið er hlaðið efni og góð viðbót við jólabókaflóðið. Meðal þess er
- Leiðari sem Örn Pálsson ritar og ber yfirskriftina „Ónógur ýsukvóti byrjaður að bíta. Auk þess að fjallar hann um: Óseld grásleppuhrogn frá síðustu vertíð, greiðsla veiðigjalds, frumvarp ráðherra um stærðarmörk og óbirt frumvarp ríkisstjórnarinna um stjórn fiskveiða.
- Sigurður Kjartan Hálfdánsson á Snólfi ÍS og formaður Eldingar: „Ýsugengdin að drepa okkur
- Davíð Freyr Jónsson á Fjólu GK: „Landað þrisvar á dag
- Georg Arnarson á Blíðu VE: „Með bland í startið
- Einar Sigurðsson á Birni Jónssyni ÞH og formaður Fonts: „Ágætt ár hjá Fonti
- „Óvissu og misræmi eytt -— Pétur Sigurðsson formann samninganefndar LS og framkvæmdastjóra Sólrúna á Árskógsströnd
- „Þurfum að breyta um stefnu – Harpa Ólafsdóttir stjórnarformaður Gildis lífeyrissjóðs
- „Tillukarlar sýna makrílveiðum mikinn áhuga -— Örn Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda
- „Síldveiðar smábáta kærkomin viðbót -— Örn Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda
- „Stofnun alþjóðlegs smábátamerkis mikilvæg -— Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda
- „Á línu allt árið -— Haraldur Árni Haraldsson og Albert Eggertsson trillukarlar og útgerðarmenn í Noregi
- „Vonarpeningur í lýsu og krabba — Þorsteinn Sigurðsson sviðsstjóri nytjastofnasviðs Harannsóknastofnunarinnar.