Fiskiskipum fjölgaði um 35 á síðastliðnu ári. Alls var fjöldi þeirra í ársbyrjun 2012 1.659, en er nú 1.694. Öll fjölgunin er í smábátum minni en 15 brt, alls 1.293 bátar en voru 1.256 1. janúar 2012.
Heildarfjöldi skipa á skipaskrá er 2.298 og hefur þeim fjölgað árlega sl. þrjú ár. 1. janúar 2010 voru 2.237 skráð á skipaskrá Siglingastofnunar.