Afli færeyskra krókabáta óbreyttur

Alls fengu 24 færeyskir bátar leyfi til línu- og handfæraveiða hér við land á síðasta ári.  Afli þeirra nam 5.506 tonnum sem er nánast óbreytt frá 2011 þegar þeir fiskuðu 5.576 tonn.  Meðalafli á báta var því 229 tonn.
Mest fiskuðu bátarnir af keilu 1.203 tonn, þorskurinn kom skammt á eftir 1.191 tonn og af ufsa veiddu þeir 940 tonn.