Makríll – tillögur LS kynntar

Fyrr í dag fundaði LS með Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.  Þar kynnti LS tillögur sínar um makrilveiðar smábáta í náinni framtíð.
Lögð var áhersla á að makrílveiðar smábáta eru komnar til að vera.  Á árinu 2012 gekk makríllinn í fyrsta skipti í verulegu magni á þeirra veiðislóð og gengu veiðarnar vel.  
Tillögur LS gera ráð fyrir að hlutur smábáta í leyfilegum heildarafla á makríl verði 18% sem er svipað og Norðmenn úthluta til smábáta.
Hér má sjá kynningu LS á tillögum sínum sem lagðar voru fram á fundinum.