Hrygningarstopp 2013

Réttur mánuður er nú í að hrygningarstopp hefjist.  1. apríl lokast svæði með Suðurströndinni mjótt belti vestur um og norður að Skorarvita.  Tilgangur hrygningarstoppsins er að gefa þorskinum góðan frið við hrygninguna, en með því telja vísindamenn Hafrannsóknastofnunar að auknar líkur séu á enn stærri þorskstofni.
Hrygningarstoppinu var fyrst komið á 1992 og er veiðibannið nú því 22. í samfeldri röð þess.
Sjá nánar: