Bandaríkjamenn sólgnir í ýsu

Á fyrstu tveim mánuðum ársins margfaldaðist sala á ferskri ýsu til Bandaríkjanna, miðað við sama tíma í fyrra.  Þeir keyptu mest allra þjóða af henni eða 41% af heildarútflutningnum.   
 
Samhliða góðri magnaukningu jókst heildarútflutningsverðmæti mikið.  Það skilaði nú 945 milljónum sem er tæpum 600 milljónum meira en á sama tímabili í fyrra.
Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands