Á morgun 23. apríl verður ársfundur Gildis lífeyrissjóðs. Fyrir fundinum liggja tillögur stjórnar LS um breytingar á samþykktum sjóðsins.
Í greinargerð með tillögunum segir að þeim sé ætlað að auka lýðræði innan sjóðsins með því að tryggja öllum sjóðfélögum atkvæðisrétt á ársfundi. Samhliða yrði fulltrúaráð sjóðsins lagt niður, en þeir einir sem það skipa hafa nú atkvæðisrétt á ársfundi.
Einnig gera tillögurnar ráð fyrir að hinn almenni sjóðfélagi bjóði sig fram til stjórnar og sjóðfélagar á ársfundi kjósi milli þeirra og velji þannig hverja þeir vilja að fari með umboð sitt í stjórn sjóðsins.
Þá er einnig í tillögunum vikið að endurskoðendum. Samþykkt hennar yrði til að auka skilvirkni í eftirliti með sjóðnum við að kosinn verði nýr endurskoðanda og eftirlitsaðili á tveggja ára fresti.
Sjá tillögur stjórnar LS
felldar inn í einstaka greinar: Tillögur til breytinga á samþykktum Gildis.pdf