Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs jókst útflutningur á ferskum þorski um fjórðung frá sama tímabili í fyrra, nam alls 4.700 tonnum. Verðmæti þessa magns var um 5,7 milljarðar sem er 11% aukning milli ára.
Frakkar og Bretar keyptu mest af okkur eða 69% heildarmagnsins. Hlutfallið var óbreytt milli ára sem og hlutur hverrar þjóðar, Frakkar með 39% og Bretar með 30%.
Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands