Þegar rýnt var í útflutningsverðmæti fyrsta ársfjórðungs kom ýmislegt forvitnilegt í ljós. Það vekur t.d. mikla athygli að útflutningsverð á ferskri ýsu er komið í þorskverð. Á sama tímabili í fyrra var þorskurinn seldur á 18% hærra verði en fékkst fyrir ýsuna.
Í ár hefur ýsan hækkað í verði á sama tíma og þorskverð hefur gefið eftir. Viðsnúningur hefur orðið í kaupendahópnum á ýsu. Á fyrstu þrem mánuðum ársins höfðu 42% af ýsunni verið seld til Bandaríkjanna á móti 26% á sama tíma í fyrra. Aukningin kom niður á Bretum sem fengu aðeins um þriðjung af ýsunni en voru með um helming alls magnsins á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.
Upplýsingar unnar upp úr tölum frá Hagstofunni