Atvinnuveganefnd ræðir stærðarmörk krókaaflamarksbáta

Landssamband smábátaeigenda skilaði umsögnum um tvö frumvörp sjávarútvegsráðherra sl. þriðjudag.  
Á fundi með atvinnuveganefnd var farið yfir athugasemdir LS og spurningum nefndarmanna svarað. Mestur tíminn fór í að fjalla um stærðarmörk krókaaflamarksbáta.  Áhugi þingmanna kom ekki á óvart varðandi það atriði, enda þeir sem endurkjörnir voru margs sinnis búnir að koma að málefninu.
Sjá umsagnir LS