Frá og með deginum í dag, 27. júní 2013, reiknast línuívilnun ekki á þorsk og gildir það til loka þessa fiskveiðiárs. Þetta er í fyrsta sinn sem þau 3.375 tonn af þorski sem ætlað er til línuívilnunar dagróðrabáta nægja ekki til að fylla fiskveiðiárið.
Línuívilnun í þorski hófst 1. september 2004 og er yfirstandandi fiskveiðiár því það níunda í röðinni sem hún er við lýði. Öll fyrri ár hefur viðmiðunin dugað.
Skorað á atvinnveganefnd
Á fundi LS með atvinnuveganefnd Alþingis sl. þriðjudag kom fram að ein af megin röksemdum nefndarinnar fyrir breytingum á stærðarmörkum krókaaflamarksbáta væri að hún mundi styrkja krókaaflamarkskerfið. Vilji nefndarinnar er því skýr, hún styður krókaaflamarkskerfið heilshugar. Framkvæmdastjóri LS sagði ljóst að með stækkuninni yrði veiðigeta í kerfinu aukin sem kallaði á meiri aflaheimildir. Hann hvatti nefndina til að beita sér fyrir aðgerðum í þá áttina og benti m.a. á að bæta heimildum við línuívilnun og að hún mundi gilda fyrir alla dagróðrabáta. Með því mundi nefndin leggja sitt lóð á vogarskálarnar í auka vægi umhverfisvænna veiða og stuðla að auknu framboði af ferskum fiski.
Einnig yrði með slíkri aðgerð dregið úr hættu á frekari samþjöppun í kerfinu og krókaaflamarkskerfið mundi áfram mynda fjölbreytta útgerðarflóru.
Stöðvun línuívilnunar þegar enn eru eftir rúmir tveir mánuðir af fiskveiðiárinu styður vel við kröfu LS.