Markaðsmál sjávarútvegsins í brennidepli

Ráðstefna undir yfirskriftinni „Markaðsmál sjávarútvegs í ljósi rannsókna og þróunar verður haldin á Ísafirði á morgun föstudaginn 6. september.  Þar verður fjallað um rannsóknir og þróun í sjávarútvegi ásamt gæða og markaðsmálum sjávarútvegs.  Sérstök áhersla verður lögð á vestfirskan sjávarútveg og samkeppnishæfni.
Ráðstefna hefst kl 10:00 með ávarpi Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.   
Þróunarsetur Vestfjarða, Árnagötu 2 – 4 hýsir ráðstefnuna, sem er öllum opin meðan húsrúm leyfir.