Strandveiðar – Hvernig gera má betur


Strandveiðar – 1. grein af 3, eftir Gísla Gunnar Marteinsson
Það er ber fyrst og fremst að þakka það Vinstri Grænum að í nokkur ár hefur verið við líði svokallað strandveiðikerfi. Það má gera ráð fyrir því að lesendur þekki í grófum dráttum hvað hér er til umræðu. Þetta eru handfæraveiðar sem stundaðar eru í kapphlaupi við tímann og aðra sem róa í þessu sama fyrirkomulagi. Einnig koma til fleiri fáranlegar reglur um hvað má og hvað má ekki en niðurstaðan er samt alltaf sú sama. Pólitískt ákveðnu magni af fiski er landað, í ár u.þ.b. 8600 tonnum.
 

Gísli Gunnar.jpg

Veiðikerfi þetta er afskaplega skemmtileg viðbót við það fyrirkomulag sem stundað hefur verið við stjórnun fiskveiða við Ísland. Hafnir sjávarplássanna hafa lifnað við og nú heyrast vélarhljóð á lygnum fjörðum þar sem kyrrðin áður ríkti ein. 
Þetta virtist vera aðaltilgangurinn með þessu veiðikerfi þegar því var komið á laggirnar. Þegar hins vegar auðlindir eru takmarkaðar þá verður það oft pólitískt deilumál hvernig nýtingunni skuli háttað. Það er hins vegar staðreynd að hvernig sem litið er á málið þá hljóta allir að sjá ókosti við sóun verðmæta. Það er líka ljóst að ef einhver auðlind, sem samfélag byggir afkomu sýna á, er illa nýtt, þá ber að gera betur.
Tilgangurinn með grein þessari og tveggja annara er að benda á hvernig gera má betur þannig að engu af ,,kostum þessa kerfis sé fórnað en að það skili öllum auknum arði og betra mannlífi.  
Hvernig hefur þetta verið?
Svona veiðiskapur hefur stundum verið nefndur ,,ólympískar veiðar. Í grunninn er einn stór pottur sem veitt er úr og svo blásið af þegar potturinn er búinn. Hver bátur má veiða ca. 770 kg. af þorski á dag. Það þarf að gerast á 14 tímum, úr höfn í höfn. Það má ekki nota til þess fleiri en 4 færi. Sá sem þetta ætlar að gera þarf að vera hluthafi í útgerð bátsins. Ef útgerðin ætlar að gera út fleiri báta þá þarf fleiri kennitölur. Þetta er sætt lítið veiðikerfi. En hvernig virkar það í raun? 
Þegar leikurinn er flautaður á þá ryðjast u.þ.b. 600 bátar á sjó, allir til að veiða 770 kg. af þorski. Sum svæðanna ná að klára skammtinn á 4 til 8 dögum. Þessa daga eru fiskverð í lágmarki. 
Því er spurt: Er sniðugt að senda 600 báta á sjó samtímis til að veiða sömu fisktegund og reyna að ljúka því af á sem skemmstum tíma og lágmarka þannig aflaverðmæti?
Augljós staðreynd: Það er ekki alltaf logn á sumrin við Ísland og bátar eru misjafnlega stórir. Viðkomandi veiðimaður sér sig því knúinn til að róa þegar aðrir róa þótt báturinn hjá honum sé miklu minni og veðrið jafnvel verra á hans heimamiðum. Staðreynd við handfæraveiðar er sú að þær er erfitt að stunda í brælu sem þýðir að þá er reynt að hanga þessa 14 tíma einhversstaðar í skjóli við landið. Víða hagar þó þannig til, a.m.k. á vestursvæðinu, að á þessum ,,skjólstöðum er eingöngu smáfisk að hafa ef eitthvað fæst, sumstaðar jafnvel afar dapurt hráefni fullt af ormi og kannski svo smátt að ekkert af því nær ,,máli. Fiskverðið er svo í fullu samræmi við hráefnið. Þetta þekkja allir veiðimenn þótt sumir láti sem þeir hafi aldrei dregið annað en stórfisk. S.l. sumar má fullyrða að þessi staða kom ítrekað upp á vestursvæðinu vegna leiðinda tíðarfars. Í stuttu máli þýðir þetta að fyrirkomulagið, eins og það er, býður upp á óhóflegt smáfiskadráp. Veiðimaðurinn er nauðbeygður til að róa ef hann ætlar ekki að horfa á pottinn klárast meðan hann situr heima í stofu.
Því er spurt: Hefði verið betra að þessi veiðimaður hefði mátt bíða betra veðurs og fara þá og ná í þessi kg. kannski þar sem hann taldi sig geta fengið ætan fisk og hugsanlega eitthvað fyrir fiskinn?
Vinstri Grænir hafa aukið aðdráttarafl vegna nafnbótarinnar ,,Grænir. Það er eitthvað sætt og jafnvel rómantískt við þessa nafnbót. Það var sjálfsagt einhver slík hugsun sem varð kveikjan að strandveiðihugmyndinni. En auðvitað var þetta þróað í hasti fyrir kosningar og því er um augljósa vankanta að ræða sem alls ekki eru ,,Grænir. Í  þessu veiðikerfi er fullt af öflugum bátum og er það vel. Það hefði hins vegar verið í stílnum að takmarka vélastærð og þá um leið ganghraða. Jafnvel hefði það gert kerfið ,,áferðarfallegra. Það fylgir stórum vélum talsverð olíueyðsla. ,,Sóun á jarðefnaeldsneyti var örugglega ekki það sem þeir ,,Grænu gerðu ráð fyrir. Það er nefnilega innbyggt í þetta veiðikerfi að flestum finnst skammturinn lítill og því verður að ,,ná skammtinum sama hvað það kostar. Stundum þarf að leggjast hressilega á olíugjöfina þegar ekki hefur gengið vel. Ef enn eru tekin dæmi af vestursvæðinu þá eru mörg dæmi um milljón í olíukostnað eftir síðasta sumar. Kannski er afraksturinn nálægt 15 tonnum. Það er sjálfsagt ekki óalgengt að í flokki öflugri bátanna sé um fjórðungur af aflaverðmætinu að renna beint til olíufélaganna. Þetta er ekki ,,Grænn veiðiskapur. 
Því er spurt: Er þessi eldsneytissóun verjandi þegar hægt er að gera miklu betur? Er ekki hægt að ná þessum 15 tonnum í helmingi færri ferðum?  Er ekkert skrýtið að Íslendingar skuli bjóða upp á veiðikerfi sem hvetur til sóunar af þessu tagi?
Setjum nú saman tvenns konar aðstæður sem nefndar hafa verið hér að ofan, veiðimaðurinn sem hékk í skjólinu kannski í smáum ormafiski og mjög smáum ufsa og hirðir hvern einasta fisk, þótt sumir ættu lífsvon með því að fara strax í hafið aftur. Kannski er þessi veiðimaður með dóttir sína með, því hver vill ekki sýna afkomendunum á hverju ,,þjóðin lifir. Kannski eru feðginin á hraðskreiðum bát og geta því bætt hressilega við ganghraðann þegar vind lægir og enn eru eftir nokkrir klukkutímar af þessum 14 sem var úthlutað.
Hver getur ekki séð fyrir sér hinn mikla veiðimann sem segir við dóttur sýna: ,,Núna skaltu sjá hvernig þetta er gert. Stúlkan heldur sér fast, á 22 mílna hraða, bíður spennt uns stoppað er klukkutíma síðar. Með það sama eru stórir fiskar á öllum færum. Jafnvel svo stórir að stúlkan á erfitt með að ná þeim inn. Ef stúlkan væri orðin vön strandveiðum þá gæti hún sagt innan tíðar: ,,Pabbi, erum við ekki komin með skammtinn og í framhaldi gæti veiðimaðurinn sagt, um leið og hann rikkir inn þremur ca. 6 kg. fiskum: ,,Jú, ætli fari ekki að styttast í það 
Þegar þau hætta leggur stúlkan sig og veiðimaðurinn setur allt í botn, það var farið að styttast í tímunum 14 og spotti í höfn. Stúlkan hjálpaði svo til á bryggjunni þegar verið var að landa. Allt í einu var kranastrákurinn hættur að hífa upp og fór að setja tóm körin aftur niður. ,,Skrýtið þótti stúlkunni og kallar því til veiðimannsins: ,,Pabbi, pabbi hvar eru körin með ufsanum og þorskinum sem við fengum í morgun?  
Gísli Gunnar Marteinsson sjómaður