Gefin hefur verið út reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um veiðar á lúðu. Breytingin varðar þá lúðu sem veiðist sem meðafli og er ekki lífvænleg, en við slíkar aðstæður er heimilt að koma með hana að landi. Hún skal seld á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafurðir og rennur með breytingunni 20% af andvirði sölunnar til útgerðar og áhafnar, en afgangurinn til rannsókna að frádregnum kostnaði við uppboðið og hafnargjöldum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið leitaði umsagnar LS við fyrirhugaða breytingu. Þar ítrekaði félagið samþykkt aðalfundar um lúðuveiðar ásamt því að taka afstöðu gegn hugmyndum ANR um ráðstöfun aflaverðmætisins. Einnig var minnt á afstöðu LS frá 2011 þegar ákvörðun um bann við notkun haukalóða.