Óslægð ýsa og þorskur hækka um 5%

Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ og LS) sem haldinn var í dag 2. desember var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðri ýsu og óslægðum þorski um 5%, ennfremur á ufsa um 2% og karfa um 5%.   
Breytingin tók gildi 2. desember.
Sjá nýjar verðtöflur frá Verðlagsstofu skiptaverðs: