Ferskur þorskur kominn í 21 milljarð

Aukning hefur orðið á útflutningi á ferskum þorski (flök og bitar) milli ára.  Fyrstu tíu mánuðir ársins skiluðu alls 21 milljarði í útflutningsverðmæti sem er aukning um 9%.  Á bakvið það voru 17,4 þús tonn sem er aukning um 26% frá sama tíma í fyrra.  Verð á ferskum þorski hefur gefið eftir, var á tímabilinu janúar – október í ár 13% lægra en í fyrra.
Mest var flutt út til Frakklands eða tæp 40% heildarmagnsins, Bretar voru með tæpan fjórðung, til Belgíu fóru 18% og Bandaríkin voru með 11%.  Af þessum fjórum löndum varð langmest aukning á sölu til Bandaríkjanna.
Unnið uppúr tölum frá Hagstofu Íslands