Deilt á Fiskistofu

Starfsemi Fiskistofu var til umræðu á Alþingi í gær.  Málshefjandi htv. alþingismaður Ásmundur Friðriksson (D), fjallaði um stofnunina og vinnubrögð hennar.  ÁF deildi hart á stofuna og sagði starfsaðferðir hennar vera með þeim hætti að undrun sætti.  „Ekki eru fengnar heimildir til húsleitar á heimilum, vinnustöðum, skrifstofum og um borð í fiskiskipum.
Í lok ræðu sinnar lagði ÁF áherslu á að „opinberar stofnanir með almannavald í höndum verða að ganga fram af hógværð og halda í heiðri að enginn sé sekur fyrr en sekt er sönnuð.  Eftirlitsstofnanir eiga að vinna með fyrirtækjum, ekki á móti þeim, sagði Ásmundur.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráherra tók undir með málshefjanda að mikilvægt sé að skoða sérstaklega rannsóknarheimildir og úrskurðarvald Fiskistofu.  Ráðherra var sammála ÁF að málsmeðferðartími (innskot LS:  alls 10 ár á 4 fyrirtæki ) „væri langur, alltof langur, sérstaklega í ljósi þess að rannsókn á fyrirtækjunum getur haft mjög neikvæð áhrif á starfsumhverfi þeirra, sagði SIJ. 
Í lok ræðu sinnar upplýsti ráðherra þingið um að reglur um vigtun sjávarafla væru til endurskoðunar og væru á þingmálalista þessa vorþings.  Þar væri stefnt að því að einfalda vigtarreglur þannig að ferlið til endanlegrar vigtunar yrði styttra og viðkomustaðir færri.
Þrír aðrir þingmenn tóku þátt í umræðunni:  Kristján Möller (S), Lilja Rafney Magnúsdóttir (V), Willum Þórsson (B) og Brynjar Níelsson (D).
Fiskistofa sat ekki þegjandi yfir þessari umræðu eins og lesa má á heimasíðu stofnunarinnar:  „Í tilefni af opinberri umræðu og fréttaflutningi vill Fiskistofa koma upplýsingum á framfæri um eftirlitshlutverk stofnunarinnar með vigtun sjávarafla og hvernig gagna er aflað og úrskurðað í svonefndum bakreikningsmálum.