Hvað gera grásleppukarlar nú?

Svartsýni ríkir meðal grásleppukarla eftir að það spurðist út að upphafsfjöldi veiðidaga á komandi vertíð yrðu aðeins 20.  Endanlegur fjöldi daga verður ekki ákveðinn fyrr en í lok mars eða nokkrum dögum eftir að vertíðin hefst.  Það er Hafrannsóknastofnun sem tilkynnir þá ráðherra um niðurstöðu úr stofnmælingu úr vorrallinu sem tekur í framhaldinu ákvörðun um leyfilegan fjölda daga.   Grásleppukarlar eru afar óánægðir með þessa tilhögun þar sem undirbúningur að vertíðinni tekur nokkra mánuði og ekki kemur í ljós fyrr en vertíð er hafin hvort hún nýtist.
Landssamband smábátaeigenda hefur bent á að það fyrirkomulag sem verið hefur á veiðum í hálfa öld bendi ekki til þess að þörf sé á frekari takmörkunum en verið hafa.  Engin hætta sé á hruni stofnsins að völdum veiða grásleppukarla sem haf glímt við eftirfarandi takmarkandi þætti á veiðunum:
Einungis bátar minni en 15 brúttótonn mega stunda veiðarnar
Fjöldi þeirra sem má stunda veiðar er takmarkaður
Netafjöldi er takmarkaður
Veðurfar á vertíðinni er mjög takmarkandi þáttur t.d. þarf ekki nema eina brælu á      
        háveiðitíma svo veiði detti niður um helming
Miðunum er skipt upp í 8 veiðisvæði, en aðeins er hægt að fá veiðileyfi á einu svæði á      
        hverri vertíð
Verðsveiflur á hrognunum hafa alltaf verið miklar sem leiðir til friðunar þegar verð er lágt.
LS hefur gegnum tíðina óskað eftir takmörkunum á veiðitíma þegar markaðsaðstæður eru      
        slakar.
Stutt er síðan Hafrannsóknastofnun hóf afskipti af grásleppuveiðum með tillögum um fjölda veiðidaga.  Tillögur sínar byggir stofnunin á merkjanlegu samræmi milli veiða á sóknareiningu og stofnmælingu úr þyngd grásleppa sem veiðast í togararrallinu.  
Engu skal spáð um það hér hvað kemur út úr togararallinu.  Hvort niðurstaðan endurspegli veiði á sóknareiningu á vertíðinni 2013 sem var góð, eður ei.
Á fundi LS með Atvinnuveganefnd Alþingis 28. janúar vék félagið að aðsteðjandi vanda grásleppukarla.  LS sagði fulla nauðsyn á að lög um stjórn fiskveiða mundu heimila aflabætur til grásleppukarla ef takmarkanir veiða leiddu til verulegs tekjutaps.