Gefin hefur verið út reglugerð um breytingu á reglugerð nr 557/2007 um afladagbækur. Þar er kveðið á um aukna skráningarskyldu í afladagbók. Við þá 6 liði sem skylt er að fylla út í afladagbók sbr. 1. mgr. 6. gr reglugerðarinnar bætast við 2 nýir liðir við nr. 7 og 8.
„7. Sjófugl eftir fjölda og tegundum,
8. Sjávarspendýr eftir fjölda og tegundum.
Reglugerðin birtist í Stjórnartíðindum í dag 5. febrúar 2014