Fyrr í dag sendi Landssamband smábátaeigenda bréf til sjávarútvegsráðherra vegna þeirra vandræða sem skapast hafa á grunnslóð við þorskveiðar vegna mikillar ýsu sem meðafla.
Í bréfinu fer LS fram á við ráðherra að hann kalli nú þegar eftir nýrri aflaráðgjöf á ýsu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Við endurskoðun ráðgjafar taki Hafrannsóknastofnun tillit til niðurstaðna úr haustralli og frétta frá sjómönnum að ýsugengd sé nú meiri en í fyrra.
Sjá nánar: