Ýsuveiðar – ráðuneytið breytir reglugerð

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur komið til móts við óskir Landssambands smábátaeigenda er varðar tímabilaskiptingu á VS-afla.  Með breytingunni er afnumin tímabilaskipting á VS-afla er varðar ýsu.
Tilgreina má ýsu sem VS-afla allt að 5% ofan á heildarafla ársins án tillits til tímabila kjósi skipsstjóri að nýta vs-aflaheimild skipsins þannig. Ársfjórðungs tímabilin gilda þó áfram fyrir aðrar tegundir í VS-afla ef undan er skilin grásleppuveiði þar miðast VS-heimildin einnig við heildarafla innan ársins líkt og nú gildir um ýsu.  Sú heimild er ekki ný. 
Athugið að eftir sem áður er hámarksheimild ársins 5%.
Breytingin rýmkar til fyrir útgerðum varðandi ýsu sem meðafla með því að hafa allt árið undir, en ekki að miða heimildina við heildarafla hvers ársfjórðungs.