Hrygningarstopp 2014

Þrjár vikur eru nú í að hrygningastopp hefjist.  1. apríl lokast svæði með Suðurströndinni mjótt belti vestur um og norður að Skorarvita.  Tilgangur hrygningarstoppsins er að gefa þorskinum góðan frið við hrygninguna, en með því telja vísindamenn Hafrannsóknastofnunar að auknar líkur séu á enn stærri þorskstofni.
Hrygningarstoppið nú er 23. í samfelldri röð þess, en því var fyrst komið á 1992.  
Sjá nánar: