Snæfell ályktar um strandveiðar

Snæfell – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi – hélt félagsfund í Stykkishólmi 7. apríl sl.  Formaður og framkvæmdastjóri LS mættu á fundinn og fluttu tíðindi af helstu málum sem hvað heitast brenna á smábátaeigendum.  
Ágæt mæting var og baráttuandi meðal fundarmanna til sóknar fyrir öflugri smábátaútgerð. Strandveiðar, línuívilnun, grásleppuveiðar, meðafli við ýsuveiðar, makríll og síld var það sem heitast brann á fundarmönnum.  
Eftirfarandi var samþykkt:
Strandveiðar

Snæfell skorar á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir umbótum á umhverfi strandveiða þannig að veiðar verði heimilaðar 4 virka daga í viku á tímabilinu maí – ágúst. 
Strandveiðar hafa komið inn sem raunhæf atvinnugrein og menningarauki fyrir hinar dreifðu byggðir.  Strandveiðar hafa þannig haslað sér völl innan samfélaganna sem líta á þær sem örugga starfsemi sem komin er til að vera, enda veiðiheimildum dreift á fjölmarga aðila.  Öryggið er ekki síst fólgið í því að það er ekki í valdi eins aðila hvort viðkomandi byggðarlag missi undirstöður sínar fyrirvaralaust.  
Snæfell minnir stjórnvöld á að öflugar strandveiðar eru ein megin forsenda þess að hægt er að bjóða ferskan fisk frá Íslandi alla mánuði ársins.
IMG_0446.jpg
Síldveiðar

Snæfell skorar á ráðherra að tryggja að síldveiðiheimildir smábáta í Breiðafirði 2014 verði ekki undir 1500 tonnum, eða sem samsvarar einum farmi síldveiðiskips.   
Makrílveiðar

Makrílveiðar hafa aukið starfsöryggi trillukarla.  Brýnt er að stjórnvöld viðurkenni að 12% leyfilegs heildarafla verði ætlað til færaveiða smábáta.  Sýnt þykir að veiðarnar skapa gríðarlega atvinnu í landi og er færaveiddur makríll eftirsótt vara.
Snæfell hafnar með öllu hugmyndum um kvótasetningu á makríl.
Grásleppuveiðar

Grásleppuveiðar eru félagsmönnum í Snæfelli gríðarlega mikilvægar.  Komandi vertíð veldur sjómönnum áhyggjum þar sem fullkomin óvissa ríkir um markað fyrir hrognin.  Brýnt er að stjórnvöld virði samþykktir þeirra aðila sem stunda grásleppuveiðar í tilraunum þeirra að ná jafnvægi á framboð og eftirspurn grásleppuhrogna.
IMG_0452.jpg

Veiðiheimildir í ýsu

Fundur í Snæfelli skorar á sjávarútvegsráðherra að auka nú þegar veiðiheimildir
í ýsu um 5000 tonn.
Línuívilnun fyrir alla dagróðrabáta

Snæfell telur brýnt að línuívilnun nái til allra dagróðrabáta.  
Með auknum þorskveiðiheimildum er svigrúm til að styrkja línuveiðar dagróðrabáta enn frekar og auka þannig framboð á ferskum fiski, þ.e. fiski sem landað er sama dag og hann er veiddur.
Formaður Snæfells er Sigurjón Hilmarsson