Fiskistofa hefur gefið út nýja afladagbók þar sem bætt er við dálkum til skráningar á fuglum og sjávarspendýrum sem kemur sem meðafli við veiðar.
Í tilkynningu frá Fiskistofu er LS beðið að vekja athygli sjómanna á að það ber að skrá allan afla í afladagbók. Hin nýja afladagbók er liður í að auðvelda mönnum að uppfylla það ákvæði.