Það styttist í lok grásleppuvertíðarinnar. Aðeins 30 bátar eru enn að veiðum. Flestir þeirra eru í innanverðum Breiðafirði þar sem 32 daga veiðitímabilinu lýkur 20. júli. Þrír bátar eru enn að í Faxaflóa og er síðasti dagur hjá þeim nk. laugardagur.
Heildarveiðin stendur nú í 6.500 tunnum af hrognum, sem er rúmum tvö þúsund tunnum minna en öll vertíðin í fyrra skilaði.
Alls stunduðu 214 bátar veiðarnar í ár á móti 286 í fyrra.