Fiskistofa hefur birt auglýsingu um stöðvun strandveiða á svæði A. Samkvæmt henni er síðasti dagur strandveiða fimmtudagurinn 12. júní.
Júní skilar því strandveiðimönnum á svæði A aðeins 7 veiðidögum sem er óbreytt frá maí.
Veiðar á svæðinu hafa gengið vel. Búið er að veiða 69% af þeim 834 tonnum sem heimilt var að veiða í júní. Meðalafli í róðri 587 kg sem er fimmtungi meira en á svæði B sem kemur þar næst á eftir.
Alls eru 562 bátar byrjaðir á strandveiðum og er 40% þeirra á svæði A.
Í gær þriðjudaginn 10. júní landaði 191 bátur á svæði A alls 111 tonnum, en að meðaltali hefur aflinn verið 115 tonn á þeim 5 dögum sem búnir eru.
Strandveiðar – byggðastefna sem virkar