Grásleppan skilaði 240 milljónum

Á árinu 2013 nam útflutningsverðmæti heilfrystrar grásleppu 240 milljónum.  Heildarmagn á bakvið töluna voru 1.116 tonn.  Nærri tveir þriðju þess magns fór beint til Kína. Annað er skráð til Hong Kong, annarra Asíulanda og Hollands, en telja verður líklegt að það hafi aðeins verið umskipunarhafnir og öll grásleppan hafi endað á borðum Kínverja.
Hér er um einstaklega gleðilegar fréttir að ræða, þar sem aðeins örfá ár eru frá því útflutningsfyrirtækið Triton í samstarfi við Landssamband smábátaeigenda fann markað fyrir grásleppuna í Kína.  Að sögn Orms Arnarsonar hjá Triton eru markaðshorfur fyrir yfirstandandi ár nokkuð góðar og bindur hann vonir við að verð muni ekki lækka jafn mikið og búist var við.
Tölur unnar úr gögnum frá Hagstofu Íslands