Á fundi stjórnar Landssambands smábátaeigenda 16. júlí sl. var mikið rætt um makrílveiðar smábáta og framtíð þeirra. Stjórn LS var á einu máli um að 6000 tonn sem ætluð eru smábátum á yfirstandandi vertíð muni verða hamlandi á veiðar þeirra. Stjórnvöld verði því að vera reiðubúin að breyta reglugerð og bæta við áætlaða veiði þannig að ekki komi til stöðvunar á miðri vertíð.
Í ályktun sem stjórn LS samþykkti er skorað á stjórnvöld að aflétta öllum veiðitakmörkunum af færaveiðum smábáta á makríl.
Í greinargerð með ályktuninni segir m.a.:
„Það getur ekki talist eðlileg túlkun að þeir einir
fái heimildirnar sem veiða yst í lögsögunni,
þegar ljóst er að tegundin er nú fyrst að nema
land á veiðisvæðum smábáta inni á flóum og fjörðum.
Eins og segir í ályktuninni.
Sjá ályktun í held: Ályktun stjórnar LS um makrílveiðar.pdf