Makrílviðmiðun hækkuð

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð um makrilveiðar.  Með breytingunni er hækkuð viðmiðun til makrilveiða með línu og handfærum úr 6.000 lestum í 6.817 lestir.
Viðmiðun í júlí hækkar um 500 tonn og verður 1.800 tonn, í ágúst 3.817 og frá 1. September 1.200 tonn.   
Samkvæmt stöðumynd Fiskistofu í dag er skráður makrílafli færabáta kominn í 1.045 tonn.