Fyrirhugaður flutningur Fiskistofu hefur mikið verið ræddur. Svo var einnig á fundi stjórnar LS þann 16. og 17. júlí sl. Ekki var tekin afstaða um flutninginn út af fyrir sig. Aftur á móti var einhugur um að minna stjórnvöld á að vanda yfirlýsingar er varða svo viðkvæm mál.
Í ályktun sem samþykkt var um flutning opinberra stofnana er skorað á stjórnvöld að fara ekki offari í yfirlýsingum er varða lífsafkomu starfsfólks. Minnt er á að enn eru viðkvæmir tímar og starfsöryggi því öllum mikilvægt.