Blíðviðri er á svæði A sem eigendur strandveiðibáta fagna sérstaklega. Lokadagur er þar í dag og eru fjölmargir á sjó. Skjáskotið hér sem tekið var af „marinetraffic kl 13:20 sýnir vel örtröðina á miðunum.
Eins og komið hefur fram bætti sjávarútvegsráðuneytið við þessum degi eftir að LS hafði óskað eftir því. Ljóst má vera miðað við þann fjölda sem er á sjó á svæðinu að aflaviðmiðun verður uppurin þegar löndunartölur dagsins verða gerðar upp.
Á svæði C var bætt við tveimur dögum. Þar er lokadagur á morgun, þriðjudaginn 19. ágúst.