Dagurinn gaf meiri afla en í fyrra

LS hefur tekið saman meðaltalsafla á hvern veiðidag í strandveiðum 2014 og 2013. Meðaltalið er reiknað fyrir hvern mánuð, maí, júní, júlí og borið saman við sömu mánuði í fyrra.  Á öllum svæðum utan júní á svæði D og júlí á B svæði skilar þetta ár meiri dagsafla.
Graf.jpg
Mestur er meðaltalsafli í róðri á mánaðartímabili 612 kg.  Á svæði A í ár og svæði B í fyrra.   Í maí sl. var meðaltalið 603 kg á svæði A og í júlí sl. 600 kg á svæði B.
Nokkur munur er á minnsta og hæsta gildinu, þar sem maí 2013 á svæði C gaf aðeins 401 kg
Sams konar tölur fyrir ágúst verða birtar að loknum yfirstandandi strandveiðum á svæði D.