Strandveiðum 2014 lauk sl. fimmtudag 28. ágúst. Veiðarnar nú voru þær sjöttu í röðinni. Það er samdóma álit viðmælenda LS að veiðarnar í ár hafi heppnast vel. Þorskafli hafi aldrei verið meiri og verð vel viðunandi.
Alls veiddu strandveiðibátar nú 8.694 tonn sem fékkst I 16.039 róðrum. Meðaltal í róðri var því 542 kg. Mestur hluti aflans var þorskur 7.744 tonn eða 483 kg að meðaltali í róðri. Það er 11% meira en í fyrra og sá hæsti í sögu strandveiðanna.
Fjöldi báta á strandveiðum í ár var 649 sem er fækkun um 26 milli ára. Flestir voru á strandveiðum 2012, en það ár stunduðu 759 bátar veiðarnar.
Mikill hugur er í strandveiðimönnum um að þróa strandveiðikerfið áfram. Stjórnvöld afnemi heildaraflaviðmiðun þannig að ekki komi til stöðvunar veiða á tímabilinu maí – ágúst. Verði það samþykkt yrðu veiðidagar jafnmargir á hverju svæði 64 miðað við strandveiðar í ár. Aðrar takmarkandi reglur yrðu óbreyttar.
Á nýliðnu tímabili var fjöldi veiðidaga á svæðum fjórum á bilinu 29 til 64 eða allt eftir því hversu lengi var að veiða upp í aflaviðmiðun hvers mánaðar.
Svæði A 29
Svæði B 45
Svæði C 55
Svæði D 64, en þar kom ekki til neinnar stöðvunar veiða.
Talnaupplýsingar unnar upp úr vef Fiskistofu og reglugerðum