Dalabyggð fjallar um makrílinn

Byggðarráð Dalabyggðar fjallaði um makrílveiðar smábáta á fundi sínum 9. september sl. og þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að stöðva veiðarnar frá og með 5. september.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi:
„Byggðarráð Dalabyggðar hvetur sjávarútvesgráðherra til að endurskoða þessa ákvörðun sína um að stöðva makrílveiðar smábáta. Fyrir liggur að þessar veiðar hafa skapað fjölda starfa vítt og breitt um landið og hleypt lífi í byggðarlögin.