Beiðni LS vel ígrunduð

Það hefur vart farið fram hjá þeim sem fylgjast með sjávarútvegsmálum hvað Landssamband smábátaeigenda hefur sótt það fast að ráðherra heimili áframhaldandi makrílveiðar.
Í viðtali við Morgunblaðið sem hér hefur verið birt sló ráðherra á allar frekari væntingar í þeim málum.  Því er ekki að leyna að mörgum makrílveiðimanninum sárnaði að heyra sjónarmið ráðherrans, sérstaklega orð hans um það jafngilti hentistefnu um stjórn fiskveiða að fallast á áskorun LS.
Morgunblaðið ræddi við framkvæmdastjóra LS af þessu tilefni og var yfirskrift fréttarinnar:  „Snautlegt að vera afgreiddir svona.

 

LS hefur sent Matvælaráðuneytinu erindi þar sem óskað er eftir að upphafsdagur grásleppuvertíðar 2024 verði 1. mars.

 

Í bréfi LS segir m.a.

Megin ástæða beiðninnar er að á undanförnum árum hefur markaður fyrir fersk grásleppuhrogn í Danmörku farið vaxandi.  Samfara hefur útflutningur héðan aukist jafnt og þétt og skilað góðu verði til sjómanna og útflytjenda.  Markaðurinn er þó enn takmarkaður við tímann frá áramótum og fram að páskum.  Þar sem páskar eru mjög snemma í ár, páskadagur 31. mars,  er hætt við að íslenskir sjómenn geti ekki nýtt sér eða annað markað fyrir fersk grásleppuhrogn hefjist vertíðin 20. mars.  Auk hrogna frá Íslandi selja danskir og sænskir sjómenn hrogn sín inn á þennan markað.

 

Vænta má svara innan skamms.