Í tengslum við Íslensku sjávarútvegssýninguna verður haldin alþjóðleg ráðstefna um stöðu sjávarbyggða, smábátaveiðar og byggðaþróun við N-Atlantshaf.
Ráðstefnan fer fram í Smáranum (fundarsalur á eftir hæð) og verður nk. laugardag 27. september kl 10:15 – 14:00.
Ráðstefna er öllum opin og aðgangur er gjaldfrjáls. Nauðsynlegt er að skrá sig með því að senda póst á Jónas R Viðarsson hjá Matís.