Heildarafli smábáta rúm 88 þús. tonn

Smábátar settu enn eitt aflametið með veiðum sínum á síðasta fiskveiðiári.  Heildarafli þeirra endaði í 88.260 tonnum.  Aldrei í sögu smábátaútgerðarinnar hefur aflinn verið meiri.
Þorskur var 60% aflans eða 53.066 tonn.  Af ýsu veiddu þeir 12.321 tonn, steinbít 3.620 tonn og ufsa 2.571 tonn.  Þessar fjórar tegundir báru því uppi 81% heildaraflans.    
Skipting aflans milli einstakra veiðikerfa var eftirfarandi:
  • Krókaaflamarksbátar 72.145 tonn
  • Strandveiðibátar 8.701 tonn
  • Aflamarksbátar 7.375 tonn
Hlutdeild smábáta í heildarafla þorsks, ýsu og steinbíts á síðasta fiskveiðiári jókst frá því 2012 / 2013.  Þannig veiddu smábátar nú 24% alls þorsks, 34% ýsunnar og 52% af öllum steinbít sem hér var veiddur.
Alls lönduðu 1.118 smábátar afla á fiskveiðiárinu 2013 / 2014.  
Skipting milli veiðikerfa og sérveiðileyfa var eftirfarandi:
Krókaaflamarkskerfi 630 bátar
Aflamarksbátar 145
  • Strandveiðar 649 bátar
  • Grásleppuveiðar 223 
  • Makrílveiðar 121
  • Síld 34
Unnið upp úr gögnum frá Fiskistofu