Óli á Stað til heimahafnar

Mikið var um dýrðir á bryggjunni í Grindavík nú í morgun þar sem fagnað var komu Óla á Stað GK 99 til heimahafnar.  Báturinn er sá stærsti í krókaaflamarkskerfinu, 14,8 m að lengd og 29,68 brt.  Eigandi er Stakkavík.
Óli á Stað siglir.jpg
Í tilefni dagsins var gestum og gangandi boðið að skoða bátinn og þiggja veitingar þ.s. m.a. voru grillaðir heilir lambskrokkar á bryggjunni.
LS óskar eigendum til hamingju með þennan merka áfanga í sögu Stakkavíkur.
Óli á Stað.jpg